Rannveig áfram í stjórn HB Granda

Rannveig Rist
Rannveig Rist Eggert Jóhannesson

Rann­veig Rist mun áfram sitja í stjórn út­gerðarfé­lags­ins HB Granda og tel­ur stjórn fé­lags­ins að ekki sé til­efni til sér­stakra viðbragða held­ur ít­rek­ar að hún beri fullt traust til Rann­veig­ar.

Sér­stak­ur sak­sókn­ari gaf í síðustu viku út ákæru á hend­ur fyrr­ver­andi spari­sjóðsstjóra og fjór­um fyrr­ver­andi stjórn­ar­mönn­um SPRON fyr­ir umboðssvik og er Rann­veig Rist er á meðal ákærðuRann­veig til­kynnti stjórn HB Granda um ákær­una þar á eft­ir en sam­kvæmt hluta­fé­laga­lög­um þyrfti Rann­veig að víkja úr stjórn­inni yrði hún sak­felld í mál­inu

„Vegna fram­kom­inn­ar ákæru á hend­ur Rann­veigu Rist tel­ur stjórn HB Granda hf. ekki ástæðu til að gera at­huga­semd­ir við áfram­hald­andi stjórn­ar­störf henn­ar fyr­ir fé­lagið. Nýt­ur Rann­veig fulls trausts stjórn­ar­inn­ar,“ seg­ir í til­kynn­ingu stjórn­ar­inn­ar. „Meg­in­regla ís­lensks réttar­fars er að hver maður skuli telj­ast sak­laus þar til sekt hans sé sönnuð og það mat er í hönd­um dóm­stóla.“

Málið var þing­fest fyr­ir héraðsdómi Reykja­vík­ur á mánu­dag og mætti Rann­veig ekki við þing­fest­ing­una og tók því ekki af­stöðu til ákær­unn­ar. Mar­grét Guðmunds­dótt­ir, Ari Berg­mann Ein­ars­son og Guðmund­ur Örn Hauks­son neituðu sök við þing­fest­ingu en Rann­veig og Jó­hann Ásgeir Bald­urs voru ekki viðstödd.

Sér­stak­ur sak­sókn­ari ákærði Guðmund, Ara, Jó­hann, Mar­gréti og Rann­veigu fyr­ir að hafa, sem for­stjóri eða stjórn­ar­menn í Spari­sjóði Reykja­vík­ur og ná­grenn­is, mis­notað aðstöðu sína hjá spari­sjóðnum og stefnt fé hans veru­lega í hættu, með því að fara út fyr­ir heim­ild­ir til lán­veit­inga þegar fé­lagið lánaði Ex­ista tveggja millj­arða lán, án trygg­inga.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka