Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já, segist forviða á niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins sem segir að fyrirtækið hafi brotið lög. Já mun áfrýja ákvörðun Samkeppniseftirlitsins.
Verðlagning Já upplýsingaveitu fyrir aðgang að gagnagrunni fyrirtækisins var óhófleg og til þess fallin að útiloka samkeppni. Já braut með alvarlegum hætti gegn samkeppnislögum og hefur Samkeppniseftirlitið gert fyrirtækinu að greiða 50 milljónir króna í stjórnvaldssekt. Þetta kemur fram í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins sem birt var í dag.
„Við erum forviða á þessari niðurstöðu, þessi ákvörðun er einsdæmi í Evrópu og okkur algjörlega óskiljanleg. Ekkert sambærilegt félag og Já í Evrópu ber kvaðir eins og þær sem íslenska Samkeppniseftirlitið hefur nú lagt á Já. Samkvæmt ákvörðun Samkeppniseftirlitsins áttum við að kaupa gögn á 100% verði af símafyrirtækjunum en selja þau aftur á 3%. Það er öllum fyrirtækjum í lófa lagt að semja beint við símafyrirtækin líkt og aðilar hafa þegar gert – en hver gengur til slíkra samninga þegar þeim er gert kleift að kaupa gögnin á undirverði af okkur?“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já, í fréttatilkynningu sem fyrirtækið hefur sent frá sér.
Þar kemur jafnframt fram að ákvörðun Samkeppniseftirlitsins gangi þvert á fyrri niðurstöðu úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála, en nefndin tók undir sjónarmið Já um að það sé fjarskiptafyrirtækjanna sem úthluta símanúmerum að veita heildsöluaðgang að slíkum gögnum. Tvær eftirlitsstofnanir hafa þannig komist að sitthvorri niðurstöðunni í málinu, segir enn fremur í tilkynningu frá Já.
„Já hefur boðið gögnin til endursölu samkvæmt verðskrá sem kynnt var Samkeppnisstofnun árið 1998 án athugasemda, því vekur furðu að sama stofnun komist nú að annarri niðurstöðu.
„Við höfnum því alfarið að Já hafi misbeitt meintri markaðsráðandi stöðu sinni á þessum markaði. Við höfum aldrei neitað neinum um aðgang að gagnagrunni okkar og verðskráin miðast við raunkostnað. Við munum að sjálfsögðu áfrýja málinu til úrskurðarnefndar samkeppnismála og dómstóla ef þess þarf.“ segir Sigríður Margrét enn fremur í tilkynningu.