Frozen-leikföng verða í flestum pökkum ungra stúlkna um jólin samkvæmt niðurstöðum könnunar sem gerð var af samtökum smásala í Bandaríkjunum. Er þetta í fyrsta skipti í ellefu ára sögu könnunarinnar sem Barbie er ekki í efsta sæti.
Samkvæmt könnuninni ætla um tuttugu prósent foreldra að kaupa varning úr Disney teiknimyndinni Frozen handa stúlkum undir tíu ára aldri. 16,8 prósent foreldra hyggjast kaupa Barbie-dúkkur en í þriðja sæti er Monster High og í því fjórða eru American Girl dúkkurnar.
Frozen leikföngin hafa notið gífurlegra vinsælda og var þar á meðal mest leitað eftir Frozen búningum fyrir hrekkjavökuhátíðina í Bandaríkjunum.
Þá hefur mbl áður greint frá því að leikföngin hafa rokið út á Íslandi en varningur tengdur myndinni var á tímabili uppseldur í nær öllum leikfangabúðum landsins.
Forbes greinir frá þessu.