Verið er að ræða um að skyndifriða innréttingarnar í Fatabúðinni samkvæmt upplýsingum frá Minjastofnun Íslands. Verði svo gert verður það í fyrsta skipti sem stofnunin beitir þeirri heimild eftir setningu nýrra laga um menningarminjar árið 2012 þegar Fornleifavernd ríkisins og Húsafriðunarnefnd voru sameinaðar.
Samkvæmt 20. grein laga um menningarminjar getur Minjastofnun ákveðið skyndifriðun menningarminja sem hafa sérstakt menningarsögulegt gildi, en hafa þó ekki verið friðlýstar eða njóta lögbundinnar friðunar, sé hætta á að minjunum verði spillt, þær glatist eða gildi þeirra rýrt á einhvern hátt. Meðan á skyndifriðun stendur gilda reglur um friðlýsingu en hún gildir hins vegar einungis í sex vikur og innan þess tíma er því nauðsynlegt að framkvæma hefðbundna friðlýsingu. Engar hlutlægar reglur gilda um skyndifriðun og fer það einungis eftir mati Minjastofnunar hverju sinni hvað teljist hafa slíkt menningarsögulegt gildi að skyndifriðun eigi við.
Innréttingarnar eru frá árinu 1947 og því yngri en 100 ára og þar með ekki sjálfkrafa friðaðar. Samkvæmt upplýsingum frá Minjastofnun er það þó svo, að ef starfsmenn stofnunarinnar verða varir við að einhverju yngra en 100 ára sé ógnað er hægt að beita þessari heimild.
Minjastofnun hefur þó ekki haft samband við eigendur hússins en skyndifriðunin tekur aðeins gildi eftir að eigendum hefur verið tilkynnt um ákvörðunina.
Mbl greindi frá því í síðustu viku að Sonja Lampa, eigandi veitingastaðarins Krua Thai, hefði keypt Skólavörðustíg 21, þar sem hún hyggst opna Krua Thai á jarðhæðinni auk þess sem íbúðum á efri hæðum hússins verður mögulega breytt í gistiheimili. Stefnt er að opnun veitingastaðarins næsta sumar og verður hann í rými hönnunarverslunarinnar Insulu og Skyrtu, þar sem Fatabúðin var áður. Eigendur Skyrtu héldu í upprunalegar innréttingar Fatabúðarinnar er þeir opnuðu sína verslun.
Fatabúðin var opnuð í húsinu árið 1927 þegar stofnað var útibú á Skólavörðustíg, en höfuðstöðvar verslunarinnar voru þá í Hafnarstræti 16. Til skamms tíma var verslunin því rekin á báðum stöðum.
Fyrsta hæð hússins á Skólavörðustíg 21a var byggð árið 1927 en ofan á húsið var byggt árið 1936. Það var Guðríður Árnadóttir Bramm sem lét byggja húsið en hún stofnaði Fatabúðina og var hún rekin í fjölskyldu hennar allt til 1955. Guðríður var þar að auki þekkt athafnakona og hafði áður rekið verslun á Ísafirði og lét meðal annars byggja stórhýsið Fell þar í bæ sem brann í miklum eldsvoða á fimmta áratugnum.
Frétt mbl.is: Krua Thai í stað Fatabúðarinnar
Frétt mbl.is: „Synd fyrir miðbæinn“