Stóru viðskiptabankarnir þrír lækkuðu vexti sína í kjölfar lækkunar stýrivaxta í nóvember en juku hins vegar vaxtamuninn. Innlán skila því minni ávinningi og útlán lækka ekki eins mikið og efni standa til. Afleiðingarnar eru þær að heimilin í landinu verða af hundruðum milljóna króna.
Seðlabankinn lækkaði stýrivexti úr 6% í 5,75% þann 5. nóvember sl. en þeir höfðu áður verið óbreyttir í um tvö ár. Þegar líða tók á mánuðinn lækkuðu bæði innláns- og útlánsvextir allra stóru bankanna þriggja.
Vextirnir tóku hins vegar ekki alveg sömu breytingum. Þannig lækkuðu innlánsvextir um 0,3% stig hjá Arion banka en útlánsvextir aðeins um 0,2% stig. Hið sama er uppi á teningnum hjá Landsbankanum, þar lækkuðu innlánsvextir um 0,25% stig en útlánsvextir aðeins um 0,15% stig. Íslandsbanki lækkaði vexti á innlánum sínum um 0,3% stig og útlánsvexti um 0,25% stig. Þetta kemur fram í tilkynningu frá VR.
Hagfræðingur VR hefur reiknað út áhrifin af þessum breytingum. Tekjur bankanna aukast um tæplega milljarð króna vegna þessara breytinga, gróflega áætlað. Seðlabankinn áætlar að um þriðjungur inn- og útlána bankanna séu til heimilanna í landinu sem verða því af hundruðum milljóna króna.
Þegar stýrivextir Seðlabankans héldust óbreyttir tóku vextir bankanna þó breytingum. Vaxtamunur Arion banka hefur til að mynda aukist um 0,20%, bara á þessu ári. Hjá Landsbankanum og Íslandsbanka hefur hann aukist um 0,15%.
Bankarnir hafa þannig allir breytt vaxtatöflum sínum án þess að stýrivextir Seðlabankans hafi tekið breytingum. Þegar stýrivextir lækkuðu hins vegar nú í byrjun nóvember nýttu bankarnir tækifærið og juku enn mun á útláns- og innlánsvöxtum.
„Við hljótum að spyrja á hvaða forsendum bankarnir tóku þessa ákvörðun? Það er erfitt að sjá að það hafi verið í þágu okkar viðskiptavinanna. Fyrirheit um aukinn kaupmátt launafólks verða að engu þegar bankarnir geta með einu pennastriki tekið ávinning vaxtalækkana til sín á þennan hátt,“ segir í tilkynningu VR.