Fjármálaráðherra Rússlands segir að ríkisstjórnin sé ekki að íhuga að setja á fjármagnshöft til að takmarka kaup á erlendum gjaldeyri og stuðla þannig að efnahagslegum stöðugleika í landinu. Þetta sagði ráðherrann eftir neyðarfund sem ríkisstjórnin hélt í dag.
Rúblan hefur hríðfallið í verði undanfarna daga og vikur.
Alexei Úljúkajev, fjármálaráðherra Rússlands, segir að fjármagnshöft hafi ekki verið til umræðu á fundinum sem möguleg lausn á gjaldeyrisvanda Rússa. Á einum degi hefur virði rúblunnar dregist saman um 20% þrátt fyrir að seðlabanki landsins hafi ákveðið að hækka stýrivextina úr 10,5% í 17%.
Ulyukayev segir að Dimítrí Medvedv, forsætisráðherra Rússlands, hafi boðað til fundarins í dag. Þar hafi verið rædda ýmsar leiðir til að sporna gegn ástandinu og koma á stöðugleika.
„Aðgerðir okkar munu beinast að því að tryggja betra jafnvægi á framboði og eftirspurn innanlands eftir erlendum gjaldeyri,“ sagði Úljúkajev.