Viðræður milli Minjastofnunar og eiganda Skólavörðustígs 21 um verndun innréttinganna í Fatabúðinni standa nú yfir og eigendur eru að skoða hvort hægt sé að nýta húsnæðið án þess að til komi veruleg breyting á þeim.
Að sögn Péturs H. Ármannssonar, sviðsstjóra hjá Minjastofnun, er nú beðið eftir svari frá eiganda og vonast hann til þess að svarið berist fljótlega. Hann segir að ávallt sé leitast við að vernda muni í samráði við eiganda en reiknar þó með að stofnunin muni samt sem áður tryggja verndunina með einhverjum hætti.
Þá getur stofnunin gripið til viðeigandi úrræða ef viðræður leiða í ljós að eigendur hyggjast breyta innréttingunum eða fjarlægja að sögn Péturs. „Við vonum samt að til þess þurfi ekki að koma,“ segir hann.
Mbl greindi frá því í byrjun mánaðarins að Minjastofnun væri að skoða það að skyndifriða innréttingarar í Fatabúðinni.
Samkvæmt 20. grein laga um menningarminjar getur Minjastofnun ákveðið skyndifriðun menningarminja sem hafa sérstakt menningarsögulegt gildi, en hafa þó ekki verið friðlýstar eða njóta lögbundinnar friðunar, sé hætta á að minjunum verði spillt, þær glatist eða gildi þeirra rýrt á einhvern hátt. Meðan á skyndifriðun stendur gilda reglur um friðlýsingu en hún gildir hins vegar einungis í sex vikur og innan þess tíma er því nauðsynlegt að framkvæma hefðbundna friðlýsingu. Engar hlutlægar reglur gilda um skyndifriðun og fer það einungis eftir mati Minjastofnunar hverju sinni hvað teljist hafa slíkt menningarsögulegt gildi að skyndifriðun eigi við.
Innréttingarnar eru frá árinu 1947 og því yngri en 100 ára og þar með ekki sjálfkrafa friðaðar. Samkvæmt upplýsingum frá Minjastofnun er það þó svo, að ef starfsmenn stofnunarinnar verða varir við að einhverju yngra en 100 ára sé ógnað er hægt að beita þessari heimild.
Frétt mbl.is: Innréttingarnar skyndifriðaðar?