Verðlag hækkaði um 0,31 prósent í desember og umfram spá greiningaraðila sem lágu á bilinu 0,2 til 0,3 prósent. Ársverðbólgan mælist nú 0,8 prósent og er sú minnsta sem mælst hefur í tvo áratugi. Jafnframt er þetta ellefta mánuðinn í röð sem ársverðbólga mælist undir verðbólgumarkmiði Seðlabankans.
Þetta kemur fram í Markaðspunktum Greiningardeildar Arion banka. Helstu liðir sem hækkuðu að þessu sinni voru flugfargjöld, eða 0,2% áhrif, húsnæðisliðurinn um 0,13% og matarkarfan um 0,05% en hækkun flugfargjalda var þó undir spám greiningaraðila. Bensín hafði mest áhrif til lækkunar, eða 0,10%, en var þó undir spá greiningardeildarinnar sem gerir jafnframt ráð fyrir að frekari lækkanir á eldsneytisverði líti dagsins ljós á næstu mánuðum.
Bráðabirgðaspá greiningardeildarinnar er þá færð lítillega niður fyrir næstu mánuði og felur spáin í sér að ársverðbólga verði nálægt 0,8% að meðaltali á fyrsta ársfjórðungi 2015 eða undir vikmörkum Seðlabankans. Ástæðan er aðallega lækkun hráolíuverðs á heimsmarkaði undanfarið og sú staðreynd að greiningardeildin telur svigrúm fyrir frekari lækkun eldsneytisverðs innanlands