Neytendastofa hefur bannað veitingastaðnum Loftinu sem rekinn er af Boltabarnum ehf. að nota heitið Loftið. Stofnuninni barst kvörtun frá keppinautnum Farfuglum ses sem rekur m.a. Loft Bar, þar sem fyrirtækið taldi að brotið væri gegn rétti sínum með notkun heitisins.
Þetta kemur fram á vef Neytendastofu, sem komst að þeirri niðurstöðu að notkun Boltabarsins á heitinu væri til þess fallin að valda ruglingshættu. Taldi Neytendastofa að líta yrði til þeirrar ríku vörumerkjaverndar sem orðmerkið veitir Farfuglum, hinnar sérstæðu notkunar merkisins, stöðu viðkomandi fyrirtækja á markaðnum og samkeppnisstöðu þeirra.
Var Loftinu því bönnuð notkun auðkennanna Lofts, Loftsins og Loftbarsins og lénsins loftidbar.is til auðkenningar á starfsemi sinni.
Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.