Á næstu mánuðum mun Krónan opna þrjár nýjar verslanir þar sem nú eru Nóatúnsverslanir. Verslanirnar í Grafarholti, Hamraborg og Nóatúni munu breytast úr Nóatúni í Krónuna.
Með þessum breytingum verða verslanir Krónunnar sextán talsins og bjóða sama verðið á öllum stöðum, segir í fréttatilkynningu.
Nóatún Austurveri mun halda áfram að bera merki Nóatúns og leggja áherslu á kjötborð, ferskvöru, heitan mat og veisluþjónustu auk breiðs vöruúrvals.