Fjármálaþjónusta í Flugstöð Leifs Eiríkssonar var ekki boðin út í haust líkt og til stóð vegna anna við val á nýjum rekstraraðilum á brottfararsvæði flugstöðvarinnar. Friðþór Eydal, talsmaður Isavia, segir leigusamning Landsbankans hafa runnið út um áramótin líkt og aðrir leigusamningar á flugvellinum.
Samningurinn var þó framlengdur til 30. júní nk. þar sem ekki varð af útboðinu í haust, en Friðþór segir að ráðist verði í það áður en leigusamningurinn rennur út.
Landsbankinn hefur sagt upp öllum þrettán starfsmönnum útibúsins í flugstöðinni en uppsagnirnar verða afturkallaðar haldi bankinn starfseminni áfram að því er fram kemur í tilkynningu Landsbankans.
Aðspurður hvort innlendum jafnt sem erlendum fjármálastofnunum muni bjóðast að taka þátt í útboðinu bendir Friðþór á að forvalið á rekstraraðilum í flugstöðinni hafi verið alþjóðlegt og að eins gæti orðið með fjármálaþjónustuna.
Frétt mbl.is: Hópuppsagnir hjá Landsbankanum
Í tilkynningu Landsbankans kemur jafnframt fram að bankinn muni taka þátt í útboði Isavia þegar það verður auglýst.