Helena Natalía Albertsdóttir gekk tómhent frá Hagkaupum í Garðabæ um helgina eftir að hafa verið meinað að greiða með tíu þúsund króna seðli. Starfsmaðurinn á búðarkassanum sagði henni að slíkur gjaldmiðill væri ekki til og því væri ekki hægt að taka við seðlinum.
„Ég var að kaupa í matinn og ætlaði að borga þegar kassastrákurinn spurði mig hvort þetta væri eitthvert djók,“ segir Helena. „Ég hef aldrei verið með tíu þúsund króna seðil áður en fékk hann frá bankanum og skildi því ekkert í þessu.“
„Hann sagði að þetta væri ekki löggildur gjaldmiðill og ég geng út með engan mat, haldandi að ég væri með einhvern gervipening,“ segir Helena. Eftir fýluferðina í Hagkaup spurði Helena móður sína um málið sem sagði henni að þetta væri einfaldlega bull. „Hún skipti þessu samt fyrir mig í þúsund króna seðla og ég fór í framhaldinu í Hagkaup í Holtagörðum og náði að kaupa mér í matinn,“ segir Helena.
Grétar Ingi Sigurðsson, verslunarstjóri Hagkaupa í Garðabæ, kannaðist ekki við atvikið en sagði verslunina að sjálfsögðu taka við tíu þúsund króna seðlum. Það hefði verið gert frá því að seðillinn fór í umferð.
Tíu þúsund króna seðillinn fór fyrst í umferð hinn 24. október 2013.