Ný útgáfa af QuizUp, sem tengir fólk á nýjan máta, kemur út í dag. Leikurinn hefur verið algjörlega endurhannaður og nú verður einnig hægt að spila QuizUp á heimasíðu leiksins.
Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn Plain Vanilla kynnti í dag til sögunnar nýja útgáfu af QuizUp spurningaleiknum sem er sá stærsti sinnar tegundar í heiminum.
Fyrri útgáfan, sem kom út árið 2013, hefur verið tekin í gegn en í þeirri nýju er lögð meiri áhersla á samskipti og að tengja fólk með svipuð áhugamál saman. Að auki hefur vefurinn QuizUp.com tekið miklum breytingum og geta notendur í borð- og fartölvum nú spilað leikinn í gegnum síðuna.
Ein áhugaverðasta viðbótin í nýja QuizUp er fréttaveita svipuð þeim sem er í ýmsum samfélagsmiðlum. Fréttaveitan er sérsniðin að hverjum og einum og auðveldar spilurum að eignast nýja vini og áhugamál.
Helstu nýjungarnar í QuizUp:
Í nýrri útgáfu leiksins er að finna yfir 600 þúsund spurningar í 1.200 flokkum. 33 milljónir manna hafa náð í eldri útgáfu leiksins og 30 þúsund nýir notendur bætast við hvern einasta dag. Virkir spilarar spila tæplega 7 milljónir leikja á dag og eyða að meðaltali 30 mínútum í að spila leikinn dag hvern. Í heildina hafa verið spilaðir rúmlega 4 milljarðar leikja þar sem spilarar hafa svarað 28 milljörðum spurninga.
Þorsteinn Baldur Friðriksson, stofnandi og framkvæmdastjóri Plain Vanilla, segir að leikurinn sé að öllu leyti hannaður á Íslandi, nánar tiltekið á Laugavegi 77, þar sem vinna nú um 85 manns. „Við erum búin að leggja allt okkar hugvit í þessa nýju útgáfu og þetta er því mjög stór dagur í sögu fyrirtækisins,“ er haft eftir Þorsteini í tilkynningu.
Frétt mbl: Quizup er vinsælasti leikurinn í Kína