Leikjaframleiðandinn CCP hyggst flytja starfsemi sína á Íslandi í nýtt húsnæði að Sturlugötu í Vatnsmýrinni. Lóðin liggur samsíða húsnæði Íslenskrar erfðagreiningar og verður byggingin alls um 14.000 fermetrar. Framkvæmdir gætu hafist í kringum áramótin.
Ástæðan fyrir því að framkvæmdir hefjast ekki strax er sú að leyfi þarf frá borginni til þess að sameina tvær lóðir áður en hægt er að hefjast handa. Hins vegar er talið að byggingin geti risið hratt þegar framkvæmdir eru hafnar og alls tekið um tvö til tvö og hálft ár.
Í húsnæðinu verður þá einnig að finna aðstöðu fyrir fleiri nýsköpunarfyrirtæki þrátt fyrir að CCP verði burðarstarfsemin í húsnæðinu. CCP mun undirrita samning um flutning starfseminnar klukkan 14 í dag.
Að sögn Eiríks Hilmarssonar, framkvæmdastjóra Vísindagarða Háskóla Íslands, má reikna með að byggingarkostnaðurinn á hvern fermetra verði á bilinu 400 til 500 þúsund krónur. Samkvæmt því verður heildarkostnaðurinn um 5,6 til 7 milljarðar króna. Í þeirri tölu er þó ekki innifalinn kostnaður við bílakjallara sem grafinn verður undir húsinu.
„Það hefur margt breyst frá upphafsárum fyrirtækisins þegar starfsemin rúmaðist í lítilli kjallaraskrifstofu við Klapparstíg. Síðustu tíu ár höfum við verið með meginstarfsemi okkar á Grandasvæðinu, þar sem hefur farið vel um okkur innan um margskonar nýja starfsemi sem þar hefur sprottið upp á síðustu árum,“ segir Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP.
„CCP hefur góða reynslu af samstarfi við önnur þekkingarfyrirtæki, sem og háskólasamfélagið hérlendis, og við erum spennt að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem fyrirhuguð er í Vatnsmýrinni. CCP varð til í Reykjavík og saga okkar í borginni spannar hátt í annan áratug.“
Hilmar segir að tími hafi verið kominn á nýja staðsetningu fyrir starfsemina hérlendis samhliða framtíðaráformum fyrirtækisins. „Starfsfólk okkar kemur allstaðar að úr heiminum til að starfa fyrir CCP, og ég er ánægður með að við höfum getað fundið starfsemi okkar á Íslandi framtíðarstað í borginni í þessu nábýli við háskólasamfélagð, fyrirtæki og frumkvöðla - og þau spennandi framtíðaráform sem fyrirhuguð eru í Vatnsmýrinni. Það er held ég ekki hægt að eignast betri nágranna,“ segir Hilmar.
Tölvuleikjaframleiðandinn CCP framleiðir og gefur út fjölspilunar-tölvuleikina EVE Online og DUST 514, auk þess að vera með leikinn EVE: Valkyrie í þróun. Fyrirtækið var stofnað í Reykjavík árið 1997 og hjá því starfa rúmlega 330 manns á skrifstofum þess í Reykjavík, Shanghai, Atlanta og Newcastle.
Líkt og fram hefur komið jókst tap CCP um tæpa sex milljarða milli ára og nam alls rúmum 8,7 milljörðum íslenskra króna á síðasta ári. Tekjur drógust saman, skuldir jukust og starfsmönnum var fækkað.
CCP hefur bent á að tapið megi rekja til afskrifta og niðurfærslu óefnislegra eigna og hafði sú ákvörðun að hætta þróun tölvuleiksins World of Darkness veruleg áhrif á útkomu ársins 2014 og bókfærðan kostnað þess. Samkvæmt ársreikningi fyrirtækisins námu óefnislegar eignir, sem er að mestu leyti eignfærður þróunarkostnaður, um 1,9 milljarði króna í lok síðasta árs samanborið við 9,6 milljarða árið 2013
Gripið var til töluverða hagræðingar á síðasta ári þar sem stöðugildum var m.a. fækkað úr 537 í 431. Líkt og áður hefur verið greint frá voru 27 starfsmenn í höfuðstöðvunum í Reykjavík látnir fara en í samtali við mbl í mars sagði Eldar Ástþórsson, upplýsingafulltrúi CCP, að ekki væri von á frekari uppsögnum.