Actavis tilkynnti í dag að ákvörðun hefur verið tekin um að færa framleiðslu lyfjaverksmiðjunnar á Íslandi til annarra framleiðslueininga samstæðunnar. Þetta er gert í hagræðingarskyni og er liður í því að tryggja samkeppnishæfni fyrirtækisins á alþjóðavettvangi að því er segir í tilkynningu.
Engar breytingar eru fyrirhugaðar á starfseminni á næstunni og mun þessi ákvörðun ekki hafa áhrif á störf hjá framleiðslueiningunni að svo stöddu en fyrstu breytinga fer að gæta í árslok 2016 þegar fyrstu áfangar í flutningi framleiðslunnar hefjast. Gert er ráð fyrir að starfsemi verksmiðjunnar á Íslandi verði lögð niður um mitt ár 2017.
Önnur starfsemi á Íslandi verður óbreytt en hérlendis er fjölbreytt alþjóðleg starfsemi, m.a. á sviði lyfjaþróunar fyrir alþjóðamarkaði, skráningarsvið sem ber ábyrgð á skráningum og viðhaldi markaðsleyfa út um allan heim, alþjóðlegt gæðasvið og fjármálasvið, auk sölu- og markaðssviðs sem sinnir Íslandsmarkaði, sem og ýmis stoðsvið.
Þá eru hér á landi höfuðstöðvar Medis, dótturfélags fyrirtækisins, sem selur lyf og lyfjahugvit Actavis til annarra lyfjafyrirtækja. Um það bil 300 starfsmenn eru hjá framleiðslueiningunni á Íslandi en um það bil 400 starfsmenn í öðrum einingum fyrirtækisins hér á landi.
Actavis hefur farið í gegnum margvíslegar breytingar á undanförnum árum með yfirtökum og samrunum innan lyfjageirans. Í tilkynningu frá Actavis segir að eftir nýlegan samruna við bandaríska frumlyfjafyrirtækið Allergan hafi fyrirtækið breyst frá því að vera öflugt samheitalyfjafyrirtæki í leiðandi alhliða lyfjafyrirtæki sem sinnir jöfnum höndum þróun, framleiðslu og markaðssetningu frumlyfja, samheitalyfja, lausasölulyfja og líftæknilyfja. Í dag er fyrirtækið orðið eitt af 10 stærstu lyfjafyrirtækjum í heimi, með starfsemi í 100 löndum og yfir 30.000 starfsmenn.
Að undanförnu hefur verið unnið að yfirgripsmikilli greiningu á framleiðslustarfsemi samstæðunnar víða um heim til þess að hámarka nýtingu á framleiðslugetu samstæðunnar.
Niðurstöður þeirrar úttektar eru þær að aðrar verksmiðjur samstæðunnar hafa svigrúm til að taka við þeim vörum sem framleiddar eru á Íslandi. Með viðbótarnýtingu tækja og mannafla, hagstæðu rekstrarumhverfi og auknu framleiðslumagni eykst hagræðing til muna.
„Ég vil taka sérstaklega fram að þessi ákvörðun endurspeglar ekki frammistöðu starfsmanna enda hefur framleiðslueiningin á Íslandi skilað framúrskarandi árangri undanfarin ár og verið til fyrirmyndar þegar kemur að gæðastjórnun, öryggismálum og þjónustu við viðskiptavini,“ er haft eftir Robert Stewart, forstjóra samheitalyfjasviðs og alþjóðaframleiðslu samstæðunnar, í tilkynningu.
„Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma til móts við starfsfólk okkar til að auðvelda aðlögun að breyttum aðstæðum. Við munum veita stuðning, bjóða upp á þjálfun og umbuna starfsfólkinu sérstaklega fyrir að vinna með okkur í gegnum þessar breytingar,“ er jafnframt haft eftir honum. „
Að lokum vil ég leggja áherslu á að við erum ekki að fara frá Íslandi – við munum halda áfram að byggja upp þær öflugu einingar sem hér starfa svo sem á sviði þróunar, skráninga, gæðamála, fjármála og sölu- og markaðsmála. Þá verða höfuðstöðvar Medis áfram hér á landi.“
Móðurfélag Actavis, sem tók nýlega upp nafnið Allergan plc (NYSE: AGN), er alþjóðlegt lyfjafyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu frumlyfja, samheitalyfja, lausasölulyfja og líftæknilyfja.
Fyrirtækið er í dag eitt af 10 stærstu lyfjafyrirtækjum í heimi með starfsemi í 100 löndum, um 30 þúsund starfsmenn, 40 verksmiðjur víða um heim og öfluga rannsóknar- og þróunargetu. Áætlaðar tekjur félagsins fyrir árið 2015 eru um 23 milljarðar dala. Höfuðstöðvar félagsins eru í Dublin á Írlandi en höfuðstöðvar stjórnunar í New Jersey í Bandaríkjunum. Félagið er skráð undir merkjum Allergan í kauphöllinni í New York.