Mögulegt álver við Hafursstaði í Skagabyggð er aðeins einn þeirra möguleika sem sveitafélögin á svæðinu hafa verið að skoða en gagnaver gæti verið meðal annarra kosta.
Þetta segir Vignir Á. Sveinsson, oddviti í Skagabyggð. Líkt og mbl greindi frá fyrr í dag hefur viljayfirlýsing um fjármögnun byggingar 120 þúsund tonna álvers á fyrrnefndu svæði verið undirrituð. Fyrirtækin Klappir Development ehf. og China Nonferrous Metal Industry´s Foreign Engineering and Construction (NFC) standa að fjármögnuninni.
Fjögur sveitafélög á svæðinu stofnuðu byggðasamlag til þess að skoða sameiginlega alla möguleika til þess að sporna við hnignun íbúafjölda; Blönduós, Húnavatnshreppur, Skagabyggð og Skagaströnd.
Vignir bendir á að íbúafjöldi á svæðinu hafi dregist mikið saman frá árinu 1990, eða um 17 prósent á Blönduósi, 23 prósent á Skagaströnd og 22 prósent í sveitunum í kring. „Þetta er bara einn af þeim möguleikum sem við höfum verið að skoða vegna þess hve lítið hefur verið um atvinnutækifæri,“ segir hann.
Líkt og fram kom í dag gera áætlanir ráð fyrir 240 varanlegum störfum í álverinu og allt að 800 tímabundnum störfum á byggingartíma.
Vignir segir að viðræður við mögulega rekstraraðila gagnavers hafi átt sér stað en segir að ótímabært sé að tjá sig frekar um málið.
Aðspurður hvort hann hafi einhverja skoðun á því hvaða rekstur væri hentugastur á svæðið segir hann of snemmt að segja og telur rétt að málið nái fótfestu áður en menn fara að mynda sér skoðanir.
Í fundargerð byggðasamlagsins frá 3. júní segir að heildarfjárfesting í fyrsta áfanga gæti numið 78 milljörðum króna og að útflutningstekjur verði um 43 milljarðar á ári. „Bygging álvers á svæðinu mun hafa varanleg jákvæð áhrif á þróun byggðar á Norðurlandi,“ segir þá einnig.
NFC, sem stendur að fjármögnuninni, er kínverskt fyrirtæki og á lista yfir 500 stærstu fyrirtæki heims.
Um er að ræða framleiðslu á 120 þúsund tonnum af áli og að það verði nýtt til framleiðslu á stöngum og vír. Ætlunin er að geta stækkað álverið um önnur 120 þúsund tonn síðar. Orkuþörf er um 206 MW í fyrsta áfanga.