Júní var metmánuður í kaupum Seðlabankans á gjaldeyri þar sem 198 milljónir evra voru keyptar en það samsvarar ríflega 29 milljörðum króna.
Til samanburðar námu gjaldeyriskaupin á fyrstu fimm mánuðum ársins að jafnaði 70 milljónum evra í einum mánuði en fyrra met var frá því í ágúst á síðasta ári þegar Seðlabankinn keypti 115 milljónir evra í ágúst í fyrra.
Þetta kemur fram í morgunkorni Greiningar Íslandsbanka þar sem bent er á að gjaldeyriskaupin endurspegli að stóum hluta mikið innflæði gjaldeyris vegna þjónustuviðskipta. Talið er næsta víst að krónan hefði styrkst hressilega í síðasta mánuði ef ekki hefði verið fyrir inngrip bankans.
Útlit er fyrir að hreinn gjaldeyrisforði bankans verði allt að þrefalt stærri um næstu áramót en hann var í ársbyrjun, þrátt fyrir að bankinn selji væntanlega talsverðan gjaldeyri í stóra aflandskrónuútboðinu í haust.
Það sem af er ári hefur Seðlabankinn keypt 551 milljónir evra á millibankamarkaði, og greitt fyrir tæplega 82 milljarða króna. Það er ríflega tvöfalt hærri fjárhæð en á fyrri hluta ársins 2014.
Fyrir liggur að Seðlabankinn mun bjóða gjaldeyri úr gjaldeyrisforðanum til sölu í stóra útboðinu sem haldið verður fyrir aflandskrónueigendur í haust og kynnt var sem hluti áætlunar stjórnvalda um losun hafta í síðasta mánuði.
Telur Greining Íslandsbanka að Seðlabankinn gæti selt í kring um 500 milljónir evra í útboðinu.
Þar með virðist það líklegt að gjaldeyriskaup Seðlabankans á sumarmánuðum dugi ein og sér til þess að útvega gjaldeyri fyrir aflandskrónaútboðið