Tónlistarmaðurinn Eyfi gjaldþrota

Eyjólfur „Eyfi“ Kristjánsson.
Eyjólfur „Eyfi“ Kristjánsson. Ómar Óskarsson

Gjaldþrot tónlistarmannsins Eyjólfs Kristjánssonar nam um 92 milljónum króna, en hann var í september í fyrra úrskurðaður gjaldþrota af Héraðsdómi Reykjaness. Eyjólfur, sem þekktur er undir nafninu Eyfi, hefur samið margar af ástsælustu tónlistarperlum þjóðarinnar, meðal annars Draum um Nínu, Danska lagið og Álfheiði Björk.

Lýstar veðkröfur í búið námu 137.959.473 krónum, en almennar kröfur voru 3.654.431 krónur. Til frádráttar því kemur yfirtaka á fasteign fyrir 50 milljónir, en hún var veðsett. Engar aðrar eignir fundust í búinu samkvæmt tilkynningu í Lögbirtingablaðinu.

Í viðtali við DV árið 2013 sagði Eyjólfur að hann hefði reynt að vera skynsamur og tekið íslenskt lán sem hefði stökkbreyst og hann hefði ekki getað ráðið við afborganir. Átti hann þá von á að hann myndi missa húsið á endanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK