Framkvæmdum í komusal Keflavíkurflugvallar verður líklega lokið um seinni hluta ágústmánaðar. Upphaflega stóð til að klára verkið í þessum hluta flugstöðvarinnar áður en aðalferðamannatímabilið hófst.
Þetta kemur fram á vefsíðu Túrista þar sem jafnframt segir að tafirnar á verklokum megi skrifa á verktakann sem sinnir framkvæmdunum.
Í vikunni verður hins vegar verslun 10-11 í komusalnum færð og um leið á að verða rýmra um sölubása og farþega á svæðinu. Í frétt Túrista er bent á að það geti verið ruglingslegt fyrir farþega að lenda í Keflavík og koma beint út á þéttskipað vinnusvæði.
Þessa dagana fer mikill fjöldi ferðamanna um Keflavíkurflugvöll þar sem hápunktur ferðasumarsins er í júlí og ágúst. Líkt og fram hefur komið hafa raðir myndast við öryggisleit brottfararfarþega á álagstímum. Í tilkynningu frá Isavia kom fram að ástæður tafanna væru meðal annars uppsetning á nýjum öryggisleitarlínum, þjálfun starfsfólks og mikill fjöldi ferðamanna um stöðina.