Bankarnir þrír í fjárfestingarflokk

Samsett mynd/Eggert

Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor´s hefur hækkað lánshæfismat Arion banka, Landsbankans og Íslandsbanka. Nýja matið setur þá alla í fjárfestingarflokk.

Nýja lánshæfismatið kemur í kjölfar kynningar áætlunar um afnám gjaldeyrishafta en nýverið hækkaði Standard & Poor‘s lánshæfismat íslenska ríkisins úr BBB- í BBB.

Lánshæfiseinkunn Landsbankans úr var hækkuð úr BB+/B í BBB-/A-3 með jákvæðum horfum.

Lánshæfismat Arion banka var hækkað úr BB+ í BBB- með stöðugum horfum. 

Lánshæfismat Íslandsbanka var hækkað í BBB-/A-3 með stöðugum horfum.

Hópur mögulegra fjárfesta stækkar

„Það er mikilvægt fyrir okkur og okkar viðskiptavini að bankinn skuli vera kominn í fjárfestingarflokk. Bankinn hefur haft góðan aðgang að erlendri fjármögnun eins og 300 milljóna evra og 500 milljóna norskra króna skuldabréfaútgáfur bankans fyrr á þessu ári bera vott um,“ er haft eftir Höskuldi H. Ólafssyni, bankastjóra Arion banka, í tilkynningu frá bankanum.

„Hins vegar stækkar hópur mögulegra fjárfesta til muna nú þegar bankinn er kominn í fjárfestingarflokk. Þannig getum við styrkt fjármögnun bankans enn frekar með það að markmiði að lækka fjármögnunarkostnað. Aukið aðgengi að erlendum fjármagnsmörkuðum gerir okkur betur í stakk búin til þess að þjónusta viðskiptavini okkar sem þurfa á erlendri fjármögnun að halda,“ er haft eftir Höskuldi.

Eykur traust á mörkuðum

Nýtt mat Standard & Poor’s er ánægjuleg tíðindi og í takt við væntingar, m.a. í kjölfar fréttar um bætta lánshæfiseinkunn ríkisins. Matið sýnir að staða bankans er sterk og að hann sé á réttri leið. Það að Landsbankinn sé nú kominn upp í fjárfestingarflokk eykur traust til bankans á mörkuðum og styður við fjármögnun hans í nánustu framtíð, bæði á innlendum og erlendum mörkuðum,“ er haft eftir Steinþóri Pálssyni, bankastjóra Landsbankans í tilkynningu frá bankanum.

Viðurkenning á árangri

Í tilkynningu frá Íslandsbanka er haft eftir Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka að niðurstaðan sé í takt við væntingar bankans í ljósi hækkunar á lánshæfismati íslenska ríkisins

„Það er ánægjulegt að fá viðurkenningu á þeim árangri sem hefur náðst, bæði í íslensku efnahagslífi sem og í endurskipulagningu lánasafns bankans,“ er haft eftir Birnu. „Lánshæfismat í fjárfestingarflokk frá Fitch og nú Standard & Poor‘s mun hafa jákvæð áhrif á aðgengi okkar að erlendu fjármagni og gera okkur kleift þjónusta viðskiptavini okkar enn betur og uppfylla framtíðarsýn bankans um að vera númer 1 í þjónustu,“ er haft eftir Birnu.

Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri Arionbanka.
Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri Arionbanka. Eggert Jóhannesson
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans.
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans. mbl.is/Kristinn
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka mbl.is/Ómar Óskarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK