Bill Gates, stofnandi Microsoft, fór til Hornvíkur á sunnudag. Flytja átti hann með þyrlu í Hornvík en ekki fékkst leyfi fyrir lendingu og því var lent í Furufirði, utan friðlands, og var Gates fluttur með báti þaðan til Hornvíkur þar sem hann gekk upp á bjarg.
Þetta kemur fram á vefsíðu Bæjarins besta. Þá segir að þeir sem komu að ferðinni hafi verið gert að skrifa undir yfirlýsingu um þagnarskyldu.
Á laugardaginn var greint frá því að Gates hefði einnig komið við í Vestmannaeyjum með þyrlu þar sem hópur lífvarða tók á móti honum og fylgdarliði. Var haldið niður að bryggju og um borð í Stóra Örn. Sigldi hann umhverfis eyjarnar, meðal annars í Æðarhelli. Komu þau svo í land um klukkan hálf fjögur og skoðuðu bæinn.
Bill Gates er stofnandi Microsoft og ríkasti maður heims.
Frétt mbl.is: Bill Gates skoðaði Vestmannaeyjar