Auðkýfingurinn Donald Trump hefur keypt fimmtíu prósent hlut NBC í fegurðarsamkeppninni Ungfrú Bandaríkin og á nú keppnina að fullu.
Trump tilkynnti þetta á Twitter í dag og þegar CNN Money leitaði eftir viðbrögðum NBC var salan staðfest. Kaupverðið var hins vegar ekki gefið upp.
Trump sagðist þá einnig hafa dregið til baka fyrirhugaða málssókn gegn NBC en hann hafði áður stefnt stöðinni vegna meintra samningsbrota í tengslum við keppnina.
Mikill styr hefur staðið um fegurðarsamkeppnina eftir að Trump lét ummæli um mexíkóska innflytjendur falla við tilkynningu á forstetaframboði sínu fyrr á árinu. NBC tók í kjölfarið ákvörðun um að sýna ekki frá keppninni. Það gerði sjónvarpsstöðin Univision einnig og tók kapalsjónvarpsstöðin Reelz að lokum við henni. Þar má hins vegar einungis búast við broti af áhorfinu sem keppnin hefði annars fengið hjá NBC.
Trump stefndi Univision einnig vegna samningsbrota og krafðist 500 milljóna dollara í bætur. Það mál hefur ekki verið fellt niður.
Just purchased NBC’s half of The Miss Universe Organization and settled all lawsuits against them. Now own 100% -- stay tuned!