Nokkur fjöldi hefur skráð sig í málsóknarfélagið sem hefur höfðað mál gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni en Jóhannes Bjarni Björnsson, eigandi Landslaga, sem sér um málsóknina, vill þó ekki gefa upp heildarfjölda félagsmanna að svo stöddu.
Málið verður þingfest þann 27. október næstkomandi í héraðsdómi Reykjavíkur.
Líkt og fram hefur komið gekk erfiðlega að birta Björgólfi stefnuna í sumar. Ekki tókst að hafa upp á honum að sögn Jóhannesar og neitaði lögmaður hans, Reimar Pétursson, meðal annars að taka við stefnunni. Í lok ágúst tókst hins vegar að birta honum stefnuna á skráðu lögheimili hans í Bretlandi.
Birtingin fór fram í gegnum utanríkisráðuneytið og var stefnan einfaldlega skilin eftir í póstkassanum líkt og heimilt er í Bretlandi.
Eins og fram hefur komið telja stefnendur málsins að Björgólfur hafi með saknæmum hætti komið í veg fyrir að hluthafar Landsbankans fengju upplýsingar um umfangsmiklar lánveitingar gegn honum og einnig að hann hafi brotið gegn reglum um yfirtöku.
Björgólfur hefur hins vegar sagt hópmálsóknina vera gróðabrall lögmanna og kallað málið auglýsingaskrum.