Hlutabréfaútboð Símans hefst í dag þar sem alls verður 18 til 21 prósent hlutur til sölu. Útboðið stendur til miðvikudags og miðað er við lágmarksgengið 2,7 krónur á hlut.
Samkvæmt því nemur heildarstærð þess 4,7 til 5,5 milljörðum króna og svarar það til um 26 milljarða króna markaðsvirðis alls hlutafjár í Símanum.
Síminn væntir þess að viðskipti með hlutabréf félagsins geti hafist á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland þann 15. október næstkomandi.
Tvær tilboðsbækur verða í boði fyrir fjárfesta. Í tilboðsbók A verður fjárfestum boðið að skrá sig fyrir kaupum að andvirði á bilinu frá 100 þúsund krónum og upp í 10 milljónir króna. Þar verður tekið við áskriftum á verðbilinu 2,7 til 3,1 króna á hlut en eitt endanlegt útboðsgengi í tilboðsbók A verður ákvarðað af seljanda í lok útboðs.
Í tilboðsbók B verður tekið við áskriftum að andvirði yfir 10 milljónum króna. Þar verður lágmarksverð 2,7 krónur á hlut og ekkert hámarksverð tilgreint af seljanda en eitt endanlegt útboðsgengi í tilboðsbók B verður ákvarðað af seljanda í lok útboðs sem verður jafnt eða hærra útboðsgengi í tilboðsbók A.