Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, hefur verið úrskurðaður gjaldþrota og í Lögbirtingarblaðinu í dag er skorað á alla þá, sem telja til skulda eða annarra réttinda á hendur honum, að lýsa kröfum innan tveggja mánaða.
Sigurður var úrskurðaður gjaldþrota hinn 23. september sl. Helgi Jóhannesson, hæstaréttarlögmaður og einn eigenda LEX, er skiptastjóri búsins.
Sigurður var í sumar dæmdur í eins árs fangelsi í „stóra markaðsmisnotkunarmálinu“ og hafði áður verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Al Thani-málinu.
Í desember hefst aðalmeðferð í Chesterfield-málinu svokallaða þar sem Sigurður er ákærður fyrir stórfelld umboðssvik og fyrir að hafa valdið Kaupþingi „gríðarlegu og fáheyrðu“ fjártóni.
Í viðtali við sænska dagblaðið Affärs världen árið 2013 sagðist Sigurður vera atvinnulaus og auralaus. Þá sagðist hann hafa selt húsið sem hann keypti í vesturhluta London með láni frá Kaupþingi, nokkrum mánuðum áður en bankinn fór á hliðina, og leigja með fjölskyldu sinni íbúð í norðurhluta borgarinnar. Sigurður sagði fjölskylduna lifa á sparnaði eiginkonunnar.
Sigurður hóf afplánun á Kvíabryggju í vor.
Frétt mbl.is: Sigurður Einarsson óskar eftir gjaldþrotaskiptum