Umboðsmaður Alþingis fór yfir erindi sitt um Seðlabanka Íslands á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í morgun. Ögmundur Jónasson, formaður nefndarinnar, segir að málið verði tvímælalaust tekið föstum tökum en nefndin mun gefa sér góðan tíma til yfirferðar.
Aðspurður um tímaramma bendir Ögmundur á að umboðsmaður hafi gefið stjórnsýslunni frest fram í apríl til þess að bregðast við en einhverra viðbragða frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd má vænta innan fárra vikna.
Þá segir hann eðlilegt að nefndin aðhafist lítið þar til fulltrúar Seðlabankans og Stjórnarráðsins hafi farið yfir erindið. „Ég geri ráð fyrir að við munum halda þessi máli gangandi og vakandi þar til niðurstaða hefur fengist,“ segir Ögmundur í samtali við mbl.
Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, sendi fjármála- og efnahagsráðherra, bankaráði Seðlabanka Íslands, seðlabankastjóra og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis bréf hinn 2. október sl. þar sem gerð var grein fyrir athugun sem hann hefur unnið að á síðustu árum vegna atriða tengdum athugunum og rannsóknum Seðlabanka Íslands vegna gruns um brot á reglum um gjaldeyrishöft.
Í bréfinu var einnig fjallað um lagagrundvöll fyrir flutningi verkefna á sviði umsýslu og sölu eigna sem Seðlabankinn hefur farið með frá árinu 2008 vegna fyrirgreiðslu við fjármálafyrirtæki og falls þeirra.
Umboðsmaður segir að ótvíræður lagagrundvöllur hafi ekki verið til staðar þegar verkefni Seðlabanka Íslands á sviði umsýslu og fyrirsvara tiltekinna krafna og annarra eigna bankans voru færð til einkahlutfélags í eigu bankans (Eignasafn SÍ) í lok árs 2009.