Árni Harðarson, stjórnarmaður og lögmaður Alvogen, á rúm sextíu prósent þeirra hlutabréfa sem eru að baki hópmálsókninni gegn Björgólfi Thor. Árni og Róbert Wessman, forstjóri Alvogen, hafa átt í löngum deilum við Björgólf sem hefur m.a. stefnt þeim báðum til greiðslu skaðabóta fyrir meintan fjárdrátt.
Þetta kemur fram í frétt Kjarnans en líkt og mbl greindi frá í gær bættist félagið Urriðahæð ehf. í málsóknarfélagið á mánudaginn, daginn fyrir þingfestingu málsins. Urriðahæð hefur fengið framselt hlutafé og skaðabótakröfur Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og hjúkrunarfræðinga, Gildis lífeyrissjóðs, Stafa lífeyrissjóðs, Festar lífeyrissjóðs og Lífeyrissjóðs Vestamannaeyja, og fer nú með 61,2 prósent allra hluta í málinu.
Kjarninn komst yfir tilboð sem félagið hefur verið að gera í hlutabréfin, en þar er boðist til þess að greiða félagsgjald eiganda bréfanna að fullu, og standa straum af öllum kostnaði vegna málsins, gegn því að fá 50 prósent allra innheimtra skaðabóta.
Ef hluthafar hafa ekki áhuga á þessari leið býðst þeim að selja hlutafé sitt og framselja samhliða skaðabótakröfuna fyrir fimm prósent af nafnvirði hlutafjárins. Samkvæmt tilboðinu fær hluthafinn samt sem áður 25 prósent af skaðabótum eftir uppgjör á kostnaði, án þess að leggja út neinn kostnað.
Hlutabréfin eru verðlaus í dag nema bótaskylda Björgólfs verði viðurkennd en fyrir þessi bréf hefur Urriðahæð greitt á milli 25 til 30 milljónir króna á síðustu dögum.
Árni og Róbert störfuðu báðir sem stjórnendur hjá Actavis þegar Björgólfur Thor var forstjóri fyrirtækisins og eru nánir samstarfsmenn í dag. Róbert hætti hjá fyrirtækinu í ágúst 2008 og sagði Björgólfur að hann hefði verið rekinn en Róbert hefur neitað því. Í yfirlýsingu frá Róberti vegna málsins sem Björgólfur höfðaði á hendur honum og Árna sagði hann Björgólfi m.a. að fara í ísfötubað og kæla sig.