Vodafone segir „meinta úrelta tækni“ sem rætt er um í skýrslu RÚV vera útbreiddustu og mest nýttu sjónvarpsdreifileið á landi í heiminum í dag, sér í lagi hjá fjölmiðlum í almannaeigu enda geri hún ekki kröfu til viðbótar kostnaðar hjá notendum.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér vegna nýrrar skýrslu um starfsemi og rekstur RÚV.
Í mars 2013 gerði RÚV samning við Vodafone um dreifingu sjónvarps-og útvarpsefnis að undangengnu útboði. Samningurinn er til 15 ára og núvirt skuldbinding vegna samningsins nemur 4 milljörðum króna. Í skýrslunni segir að samningurinn hafi reynst RÚV „dýrkeyptur“ og að fjármunirnir hefðu nýst betur í að ljósleiðaravæða landsið.
Vodafone ítrekar að upplýsingagjöf félagsins um umræddan samning hafi verið vönduð og skýr. Þá segir að félagið hafi fengið staðfest hjá Kauphöll Íslands að upplýsingagjöf félagsins sé hvorki til skoðunar né rannsóknar þar.
Bent er á að samningurinn taki ekki einungis til uppbyggingu og rekstur stafræns dreifikerfis sjónvarps, heldur sjái Vodafone einnig um rekstur langbylgjurása RÚV og rekur tæplega 200 FM senda um allt land.
Í skýrslunni er bent á að tæknin bjóði hvorki upp á gagnvirkni, Internet né sé hún besta eða ódýrasta lausn. Áætlað er að a.m.k. 90% landsmanna nái útsendingum sjónvarps í gegnum dreifikerfi annarra en RÚV, sem byggja á Internet tækni.
Þá segir að krafa um 99,8% dreifingu kerfisins sé langt umfram kröfu um dreifingu almannaþjónustumiðla í öðrum dreifbýlum löndum eins og Noregi og Bretlandi.
Vodafone vísar til þessa og segir alla þátttakendur í útboðinu hafa miðað við gefnar forsendur um 99,8 prósent dreifingu og bætir við að sífellt fleiri lönd séu að nýta sér þessa tæni, sem kallast DVB-T2, og fór fyrst í loftið í Bretlandi 2010.