Spyr aftur um „stærsta snyrtivörusala landsins“

Fríhöfnin
Fríhöfnin mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir Isavia augljóslega hafa mikinn áhuga á samkeppni við verslunina í landinu ef marka má aukin umsvif Fríhafnarinnar, „sem er orðinn stærsti snyrtivörusali landsins og hefur fært út kvíarnar í nærföt og leikföng, svo dæmi séu tekin.“

Þetta setur hann í samhengi við nýlegt álit Samkeppniseftirlitsins, sem beint var til innanríkisráðherra, og segir að Isavia, móðurfyrirtæki Fríhafnarinnar, hafi „neikvætt viðhorf til samkeppni“. 

Þetta kemur fram í bréfi þar sem fyrirspurn félagsins um afstöðu ráðuneytisins til pöntunarþjónustu Fríhafnarinnar í Leifsstöð, svokallaðrar Express-þjónustu, er ítrekuð. Þjónustan gengur út að fólk geti pantað vörur án opinberra gjalda á netinu og svo eru þær sóttar í brottfarar- eða komuverslun Fríhafnarinnar.

Í bréfinu er bent á að ekkert komi í veg fyrir að fólk fái vini og vandamenn sem eiga leið um flugvöllinn til að sækja þessar pantanir fyrir sig.

„Með rekstri pöntunarþjónustunnar er þessi ríkisrekna samkeppni við einkaaðila komin út fyrir öll eðlileg mörk,“ segir í bréfinu.

Hægst á stjórnsýslunni

Bent er á að í fyrra bréfi FA til ráðherra, sem var sent 12. ágúst, var rifjað upp að í ágúst 1996 brást forveri ráðherrans, Friðrik Sophusson, hratt við athugasemdum Félags íslenskra stórkaupmanna, forvera FA, við sambærilega þjónustu Fríhafnarinnar.

Svar við bréfi FÍS barst daginn eftir og var skýrt og skorinort: „Heimild til innflutnings á vörum án greiðslu aðflutningsgjalda er bundin við vörur til eigin nota fyrir ferðamenn og telur fjármálaráðuneytið að gera eigi kröfu um að þeir greiði sjálfir fyrir þær vörur sem þeir kaupa í fríhöfn og flytja til landsins.“ Í framhaldinu var tekið fyrir símasölu Fríhafnarinnar.

Í fyrra bréfi Félags atvinnurekenda er spurt hvort afstaða ráðuneytisins til pöntunarþjónustu af þessu tagi hefði breyst. Ef ekki, til hvaða aðgerða ráðuneytið hygðist þá grípa. „Talsvert virðist hafa hægst á stjórnsýslunni frá því árið 1996, því að ekkert svar hefur borist, rúmlega 10 vikum síðar,“ skrifar Ólafur.

Ólafur Stephensen.
Ólafur Stephensen.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK