Stjórn lyfjarisans Pfizer hefur samþykkt yfirtöku á Allergan, móðurfélagi Actavis á Íslandi. Samruninn er metinn á 160 milljarða dollara eða um 21 þúsund milljarða króna. Sameinað fyrirtæki verður stærsti lyfjaframleiðandi heims.
Allergan hét áður Actavis og á Björgólfur Thor Björgólfsson um prósent í félaginu. Eftir samruna fyrirtækjanna var nafn þess fyrrnefnda tekið upp fyrir samsteypuna. Síðar keypti ísraelska lyfjafyrirtækið Teva Allergan.
Greinendur hafa bent á að töluvert skattahagræði fylgi samrunanum og er það talin ein meginástæða aðgerðanna. Allergan er skráð á Írlandi þar sem skattar á fyrirtæki eru lægri en í Bandaríkjunum.
Forstjóri Pfizer, Ian Read, verður forstjóri sameinaðs fyrirtækis en forstjóri Allergan, Brent Saunders verður framkvæmdastjóri.
Miklar sviptingar hafa verið á lyfjamörkuðum að undanförnu en líkt og áður segir keypti ísraelska lyfjafyrirtækið Teva samheitalyfjahluta Allergan, sem áður hét Actavis, á 40,5 milljarða Bandaríkjadala, í júlí sl. en kaupverðið svaraði til tæplega 5.500 milljarða króna. Nafni Actavis var breytt í júní í kjölfar kaupa fyrirtækisins á lyfjaframleiðandanum Allergan í mars sl.