Linda Pétursdóttir, fyrrverandi eigandi Baðhússins, var úrskurðuð gjaldþrota í Héraðsdómi Reykjaness hinn 12. nóvember sl.
Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu í dag þar sem jafnframt er skorað á kröfuhafa að lýsa kröfum í búið innan tveggja mánaða.
Líkt og fram hefur komið var Baðhúsinu lokað í desember á síðasta ári og sagði Linda að rekstrargrundvellinum hefði verið kippt undan fyrirtækinu þegar loforð um afhendingartíma á nýju húsnæði í Smáralind voru svikin. Auk þess hefði húsnæðið verið hálfklárað við afhendingu og iðnaðarmenn sífellt andandi ofan í hálsmálið á viðskiptavinum.
Baðhúsið var úrskurðað gjaldþrota í janúar sl. og var skiptum lokið í lok ágúst. Heildarkröfur námu 181,6 milljónum króna og fékkst um 2,1 milljón króna greiddar upp í þær.
Linda var 24 ára gömul þegar hún stofnaði Baðhúsið. Fyrst um sinn var heilsuræktin í Ármúla, síðar Brautarholti og í um eitt ár í Smáralind.