Greiðsluúr frá Swatch og Visa eru væntanleg á markað í byrjun næsta árs. Flaga með greiðslukortaupplýsingum verður fyrir neðan skífuna en þess fyrir utan er enginn aukabúnaður í úrinu. Það mun kosta um eitt hundrað dollara, eða rúmar þrettán þúsund krónur.
Visakorthafar í Bandaríkjunum, Brasilíu og Sviss munu geta keypt sér úrið sem á að virka í öllum þráðlausum posum.
Úrið nefnist „Bellamy“ en samkvæmt Swatch var það nefnt í höfuðið á bandaríska rithöfundinum Edward Bellamy sem skrifaði um útópíska veröld þar sem greiðslukort höfðu komið í stað fyrir reiðufé. Bókina skrifaði hann árið 1888 og nefnist „Looking Backward 2000-1887“.
Swatch ætlar að koma fleiri snjallúrum á markað á næstu misserum, þ.á.m. Touch Zero sportúrinu sem verður með ýmsum aukahlutum.