Forstjóri breska flugfélagsins Monarch segir að farþegar séu að bíða lengur með að bóka flug eftir nýlegar hryðjuverkaárásir í París og á rússnesku farþegaþotuna yfir Sinaí-skaga.
Andrew Swaffield segir að dregið hafi úr bókunum strax í kjölfar árásanna en að nú séu þær aftur að komast í eðlilegt horf. Flug til borgarinnar Sharm el-Sheikh, þaðan sem farþegaþotan var að koma, hafa þó ekki verið hafin á ný.
Í samtali við BBC segir hann bókanir hafa færst nær brottfarardegi. „Bókanir eru miklar og það er ekkert áhugaleysi, en þeir eru ekki að bóka langt fram í tímann, vegna þess að þeir eru að bíða og sjá hvað heimurinn hefur upp á að bjóða,“ sagði Swaffield.
„Þetta ástand mun örugglega vara í einhvern tíma áður en hlutirnir komast aftur í rétt horf.“
Flugfélagið gerir ráð fyrir ríflega 40 milljóna punda hagnaði á þessu ári eftir uppstokkun í rekstri má síðasta ári.
Félagið tapaði 94 milljónum punda árið 2014.