Segja Norðurál nýta sér kjaradeilu

Norðurál Elkem Grundartangi
Norðurál Elkem Grundartangi mbl.is/Sigurður Bogi

„Það er tilfinning okkar að forsvarsmenn Norðuráls á Grundartanga séu á opinberum vettvangi að beita kjaradeilunni í Straumsvík í samningaviðræðum sínum við Landsvirkjun,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri fyrirtækisins, í samtali við Morgunblaðið. Nú standa yfir viðræður milli Norðuráls og Landsvirkjunar um nýjan raforkukaupasamning en sá sem nú er í gildi rennur út árið 2019.

„Við höfum hvergi séð forsvarsmenn Rio Tinto Alcan í Straumsvík beita raforkukaupasamningi sínum við Landsvirkjun fyrir sig í þeirri viðkvæmu deilu sem þeir standa í þessa dagana. En það er mat okkar að Norðurál sé að draga kjaradeiluna inn í málið til að veikja umboð Landsvirkjunar til að semja um sem best verð fyrir rafmagnið sem fyrirtækið framleiðir,“ bætir Hörður við. Í fréttatilkynningu sem Landsvirkjun sendi frá sér í gær kemur fram að vilji fyrirtækisins standi til að endursemja við Norðurál og tryggja álframleiðandanum rafmagn í nýjum samningi. Í tilkynningunni er ítrekað að það sé gert með það að leiðarljósi að hann verði hagstæður fyrir báða aðila.

Hörður segir að Norðurál geti greitt hærra verð fyrir rafmagnið en fyrirtækið gerir í dag. 

Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, segist mjög undrandi á orðum Harðar en mun að öðru leyti tjá sig nánar um málið í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK