Hæstiréttur staðfesti í gær niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur um að meina þeim Kamran Keivanlou og Gholamhossein Mohammad Shirazi aðgang að húsnæði skemmtistaðarins Austur.
Þeir sitja í stjórn félagsins 101 Austurstræti ásamt þeim Ásgeiri Kolbeinssyni og Kolbeini Péturssyni. 101 Austurstræti heldur utan um rekstur Austurs.
Í dóminum kemur m.a. fram að þeir vildu fá aðgang að húsnæðinu til þess að geta fengið í hendur bókhald félagsins. Þá segir að Kamran hafi verið með lykla að húsnæðinu þar til í apríl 2014 þegar Ásgeir lét skipta um lás á hurðum staðarins.
Haft er eftir Ásgeiri og Kolbeini að Kamran hafi verið meinaður aðgangur að húsnæðinu sökum almennrar framkomu hans í garð starfsfólks skemmtistaðarins.
Líkt og áður segir sitja þeir allir í stjórn 101 Austurstrætis. Í dómi Hæstaréttar er tekið fram að taka þurfi ákvarðanir um málefni félagsins á formlegum fundum stjórnarinnar.
Ekki þótti sýnt fram á að stjórn félagsins hefði veitt þeim þessa formlegu heimild til aðgangs að húsnæðinu á stjórnarfundi, eða að hægt væri að styðja heimildina við samþykktir eða ályktanir hluthafafundar.
Kröfu þeirra var því hafnað