„Þetta getur skapað tækifæri fyrir þá sem yngri eru og eru enn að þróa sinn stíl því þarna er kominn annar vettvangur sem gæti verið af hinu góða,“ segir Hrafnhildur Gunnarsdóttir, formaður félags kvikmyndagerðarmanna um efnisveituna vinsælu Netflix sem nú er aðgengileg í gegnum íslenskar Ip-tölur. Félagið segir komu Netflix til landsins jákvæða, henni fylgir að nú er íslenskt efni í fyrsta skipti aðgengilegt þar.
Í sama streng tekur Hilmar Sigurðsson, formaður Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda. Tilkoma íslensku útgáfu Netflix auki úrval íslenskra neytenda. Áhorf á Netflix eykur notkun gagnamagns sem getur haft í för með sér talsverðan kostnað fyrir neytendur.