Haukur ráðinn fjármálastjóri Móbergs

Haukur Skúlason
Haukur Skúlason Aðsend mynd

Haukur Skúlason hefur verið ráðinn fjármálastjóri Móbergs ehf. og hefur þegar tekið til starfa.

Móberg er eigandi nokkurra fyrirtækja, þ.e. Hópkaupa, Skífunnar, Leitar.is, Netgírós, Blands, 433.13, Wedo og Móa Media. 

Haukur hefur langa reynslu úr fjármálageiranum. Undanfarin 10 ár hefur hann starfað hjá Glitni og seinna meira Íslandsbanka. Frá árinu 2013 hefur hann unnið sem verkefnastjóri framtaksfjárfestinga hjá Íslandssjóðum, dótturfélagi Íslandsbanka. Þá gegndi hann stöðu forstöðumanns framtaksfjárfestinga hjá VÍB. Einnig hefur Haukur verið forstöðumaður í greiningu og stefnumótun á viðskiptabankasviði Íslandsbanka.

Haukur var þá stjórnarformaður FAST-1 slhf. sem er eitt stærsta fasteignafélag landsins, stjórnarmaður hjá Kreditkortum hf. og þar áður stjórnarmaður í Frumtaki frumkvöðlasjóði.

Haukur lauk M.B.A. gráðu í fjármálum frá Rice University, Jesse H. Jones Graduate School of Management árið 2005, B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum Íslands árið 2001 og stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK