Gætu keypt fyrirtækið í heild

Þorsteinn B. Friðriksson, forstjóri og stofnandi Plain Vanilla.
Þorsteinn B. Friðriksson, forstjóri og stofnandi Plain Vanilla. mbl.is/Ómar Óskarsson

Tölvuleikjaframleiðandinn Glu Mobile Inc hyggst fjárfesta í íslenska tölvuleikjafyrirtækinu Plain Vanilla fyrir allt að 7,5 milljónir bandaríkjadala sem samsvarar um 970 milljónum króna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Plain Vanilla.

Glu Mobile sérhæfir sig í að framleiða leiki fyrir snjallsíma og spjaldtölvur. Plain Vanilla framleiðir spurningaleikinn QuizUp sem var hleypt af stokkunum haustið 2013. Síðan þá hafa um 40 milljónir notenda skráð sig til leiks.

Samkvæmt fréttatilkynningunni fyrirtækisins er Glu Mobile Inc skráð í bandarísku NASDAQ kauphöllina en stærstu hluthafar Glu eru ýmsir fjárfestingarsjóðir. Kínverska fyrirtækið Tencent, sem er stærsta netfyrirtæki Asíu og það fjórða stærsta í heimi, keypti 15% hlut í Glu fyrir um 15 milljarða króna í apríl í fyrra en Tencent er einnig á meðal stærstu hluthafa í Plain Vanilla.

„Glu og Plain Vanilla ætla að taka höndum saman og einblína m.a. á þróun QuizUp sjónvarpsþáttarins en tilkynnt var um það síðasta haust að stærsta sjónvarpsstöð Bandaríkjanna, NBC, hefði ákveðið að framleiða 10 þátta seríu sem byggir á QuizUp. Í kjölfarið keypti ITV fjölmiðlarisinn, sem rekur hátt í tíu sjónvarpsstöðvar í Bretlandi, réttinn að QuizUp spurningaþættinum þar í landi. Standa vonir til þess að QuizUp spurningaþáttur verði sýndur um allan heim en í honum etja þátttakendur í upptökuveri kappi við sjónvarpsáhorfendur sem sitja heima í stofu og eiga sigurvegarar möguleika á að vinna sér inn háar upphæðir. Búist er við því að fjöldi fólks muni sækja QuizUp appið eftir að þættirnir fara í loftið,“ segir í tilkynningunni.

Forstjóri Glu, Niccolo de Masi, mun taka sæti í stjórn QuizUp auk þess sem Glu mun öðlast kauprétt á öllu hlutafé Plain Vanilla á fyrirfram umsömdu verði sem gildir næstu 15 mánuði.

„Til viðbótar við þau tækifæri sem felast í kynningarsamstarfi á milli leikja Glu og sérhæfðra áhugahópa innan QuizUp, þá erum við spennt að sjá þennan spennandi, nýja spurningaþátt sem verður til með samvinnu Plain Vanilla og NBC. Ef samstarfið verður farsælt og tekjur af QuizUp halda áfram að aukast þá mun Glu skoða að nýta þann rétt sem við höfum til að kaupa fyrirtækið í heilu lagi,“ er haft eftir de Masi, í fréttatilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK