Svör Landsbankans til Bankasýslunnar verða afhent formlega á morgun og stendur lokavinna við svörin nú yfir að sögn upplýsingafulltrúa.
Borgun svaraði í gær bréfi Steinþórs Pálssonar, bankastjóra Landsbankans. Þar var ítrekuð afstaða fyrirtækisins um að Borgun hefði aldrei mátt ætla að bankinn væri grandlaus um valréttarsamninginn.
Þá hafi bankinn verið upplýstur um aðild Borgunar að Visa Europe á tveimur kynningarfundum.
Borgun hefur vísað í svokallað gagnaherbergi sem bankinn hafði aðgang að. Þar hafi legið ítarlegar upplýsingar um rekstur félagsins og þá m.a. um eignarhlut Borgunar í Visa Europe og valréttarákvæðið milli Visa Inc og Visa Europe.
Í svari við fyrirspurn mbl um mögulega yfirsýn bankans vísar bankinn til svara Steinþórs, sem komu fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins á mánudag.
„Þetta var rafrænt gagnaherbergi sem ekki var hægt að prenta úr og þar voru ýmsar upplýsingar. Ef þessar upplýsingar lágu fyrir að þeir ættu rétt á greiðslum, þá finnst okkur eðlilegt að þeir hefðu átt að gera grein fyrir því í sínum stjórnendakynningum og í reikningum félagsins,“ sagði Steinþór.
Í bréfi Borgunar kemur fram að fyrirtækið hafi ekki metið eignarhlut sinn í Visa Europe sem veruleg verðmæti, enda ekki haft ástæðu til annars fyrr en nú. Þetta sé m.a. vegna þess að verðmætið hafi alfarið verið háð mögulegri nýtingu þriðja aðila og sá nýtingarréttur var til 99 ára.
„Borgun bjó aldrei yfir upplýsingum um hvort, hvenær né á hvaða verði Visa Europe yrði mögulega selt, fyrr en salan var gerð opinber þann 2. nóvember 2015. Vænt hlutdeild Borgunar í söluandvirði á Visa Europe varð síðan ekki ljós fyrr en með bréfi Visa Europe þann 21. desember sama ár,“ segir Borgun.
31,2% hlutur Landsbankans í Borgun var hins vegar seldur í nóvember 2014 í lokuðu söluferli.
Frestur Landsbankans til að svara bréfi Bankasýslunnar rennur út 12. febrúar en líkt og áður segir stendur til að svara því á morgun.
Bankasýslan hefur farið fram á upplýsingar um það með hvaða hætti hafi verið staðið að sölu á eignarhlutum í fyrirtækjum í eigu bankans aftur til ársins 2009. Þar á meðal hvaða mat Landsbankinn hefði lagt til grundvallar sölunni á Borgun.
Í svari Borgunar í gær kom fram að Borgun muni fá verðmæti að upphæð 6,5 milljarðar króna í sinn hlut vegna kaupa Visa Inc. á Visa Europe. 4,8 milljarða eingreiðsla mun koma í hlut fyrirtækisins vegna viðskiptanna og þá fær það sömuleiðis forgangshlutabréf í Visa Inc. sem síðastnefnda fyrirtækið metur í dag að jafnvirði 1,7 milljarða króna.
Frekari verðmæti geta komið í hlut fyrirtækisins vegna afkomutengdrar greiðslu sem skiptast mun á leyfishafa í Visa Europe. Umfangið mun ráðast af viðskiptaumsvifum Borgunar á næstu fjórum árum.