Sesselía Birgisdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Advania.
Nú síðast var Sesselía stjórnandi hjá Red Apple Apartments, alþjóðlegri leigumiðlun sem hún er einn stofnenda að. Í starfi sínu þar bar Sesselía ábyrgð á markaðsmálum fyrirtækisins og ímyndauppbyggingu.
Áður var Sesselía markaðsráðgjafi hjá almanntengslafyrirtækinu Eflir, hún starfaði við sölu og markaðsmál hjá útgáfufyrirtækjunum Veröld, Eddu, Vöku Helgafelli og Iceland Review.
Sesselía hefur verið búsett í Svíþjóð undanfarin 10 ár. Auk þess að stofna Red Apple Apartments sótti Sesselía sér tvær mastersgráður frá Háskólanum í Lundi, annarsvegar í stjórnun mannauðs með áherslu á þekkingarmiðlun og breytingar, og hinsvegar í alþjóða markaðsfræðum og vörumerkjastjórnun.
Hjá Advania á Íslandi starfa um 600 sérfræðingar á sviði upplýsingatækni en auk þeirra starfa 280 hjá Advania í Svíþjóð og 120 hjá Advania í Noregi.