Hagnaður Landsvirkjunar jókst á milli ára og nam 10,8 milljörðum króna á síðasta ári samanborið við 10,1 milljarð króna árið áður sé miðað við núverandi gengi. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir afkomuna hafa verið góða í krefjandi umhverfi.
Rekstrarhagnaðarhlutfall, þ.e. EBITDA hlutfall, hækkaði á milli ára, þótt álverð hafi farið lækkandi að undanförnu og mikil óvissa hafi ríkt á mörkuðum. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði nam 16,7 milljörðum króna og raforkusala Landsvirkjunar á árinu 2015 var sú mesta frá upphafi, eða 13,9 teravattstundir.
Í afkomutilkynningu er haft eftir Herði að sterkt sjóðstreymi hafi gert fyrirtækinu kleift að vinna áfram að lækkun skulda, en hreinar skuldir hafa ekki verið lægri síðan 2005 og lækkuðu um rúma 26 milljarða króna á árinu.
Síðan 2009 hafa þær samtals lækkað um ríflega 107 milljarða króna. Skuldsetning samstæðunnar, mæld á móti rekstrarhagnaði fyrir afskriftir, lækkar töluvert og eiginfjárhlutfall er nú hærra en það hefur verið frá upphafsárum fyrirtækisins, eða 44,7 prósent.
Í lok ársins námu heildarskuldir samtals 2,3 milljörðum dala.
„Þrátt fyrir krefjandi umhverfi á flestum hrávöru- og orkumörkuðum er eftirspurn eftir orku frá Landsvirkjun mikil frá fjölbreyttum iðnaði. Fyrirtækið vinnur, innan þess svigrúms sem það hefur, að því að svara þessari auknu eftirspurn, en nú standa yfir framkvæmdir við byggingu jarðvarmavirkjunar áÞeistareykjum og nú á vormánuðum munu hefjast framkvæmdir við stækkun Búrfellsvirkjunar,“ er haft eftir Herði.
Heildarrekstrartekjur samstæðunnar árið 2015 lækkuðu um 17 milljónir Bandaríkjadala frá árinu áður. Rekstrarhagnaður samstæðunnar fyrir afskriftir, EBITDA, nam 322 milljónum Bandaríkjadala.
Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði er sá mælikvarði sem Landsvirkjun horfir til þegar það metur grunnrekstur fyrirtækisins. Hagnaðurinn nam 131 milljón Bandaríkjadala en var 147 milljónir Bandaríkjadala árið áður
Hér má skoða ársreikninginn í heild.