Úrvalið á íslensku útgáfu Netflix er aðeins um sautján prósent af úrvalinu í bandarísku útgáfunni. Á Íslandi eru alls 957 titlar í boði en í Bandaríkjunum eru þeir 5.750.
Þetta kemur fram í lista sem Extreamist tók saman. Þar situr Ísland í 106. sæti, á milli Kyrgyzstan og Papúa Nýju-Gíneu. Bandaríkin eru eins og við mátti búast í 1. sæti. Úrvalið á hinum Norðurlöndunum virðist nokkuð betra, en Danmörk situr t.d. í 52. sæti með 2.140 titla, Noregur í 53. sæti með 2.124 titla, Svíþjóð í 54. sæti með 2.120 titla og Finnland í 55. sæti með 2.096 titla. Lélegasta úrvalið er hins vegar í Marokkó þar sem einungis 157 titlar eru í boði.
Á Íslandi eru í boði 180 þáttaraðir og 777 kvikmyndir.
Í nýrri skoðanakönnun MMR kom fram að um þriðjungur íslenskra heimila eru með áskrift að Netflix, eða 33,2%.
Hliðstæð skoðanakönnun var gerð af MMR fyrir Viðskiptablaðið fyrir tveimur árum í febrúar 2014. Þar kom fram að 16,7% höfðu aðgang að Netflix á heimili sínu. Þá var hins vegar aðeins hægt að nálgast slíka áskrift eftir krókaleiðum, til að mynda með því að skrá hana í gegnum bandaríska eða breska ip-tölu.
Í byrjun þessa árs var hins vegar opnað fyrir áskrift fyrir íslenskar ip-tölur. Áskriftir að Netflix hér á landi hafa þannig tvöfaldast á tveimur árum. Hvernig skiptingin er í dag á milli íslensku útgáfunnar og erlendra útgáfa þjónustunnar liggur ekki fyrir.