Umsókn Hard Rock sem var hafnað var ekki endanleg og önnur var lögð inn fyrir tæpum tveimur vikum. Í seinni umsókninni eru teikningar fullmótaðar og Hard Rock-búðinni, sem verður á jarðhæð, gefið meira vægi.
Líkt og fram hefur komið var fyrri umsókn Hard Rock hafnað vegna svokallaðra starfsemiskvóta í miðborginni. Til stendur að opna veitingastaðinn í Iðuhúsinu við Lækjargötu.
Í greinargerð umhverfis- og skipulagssviðs kom fram að á svæðinu sé hlutfall veitinga- og skemmtistaða á svæðinu 53%, sem er yfir 50% viðmiðinu. „Það er því ekki hægt að heimila fleiri veitingastaði á jarðhæð götuhliða á umræddu svæði,“ segir í greinargerðinni.
Samkvæmt reglunum má veitingastaðurinn ekki sjást frá götunni en ýmsar leiðir hafa verið farnar í kringum reglurnar og má þar t.d. benda á nýlegan veitingastað NAM á Laugavegi sem var færður innar í húsnæði þeirra til þess að sjást ekki frá götunni.
Birgir Þór Bielvedt, sem hefur sérleyfi fyrir staðnum hér á landi, segir gömlu umsóknina einungis hafa verið tillögu þar sem aðstandendur voru að reyna átta sig á umhverfinu. Síðan hefur verið fundað með forsvarsmönnum Hard Rock í Bandaríkjunum og í nýju umsókninni er tekið mið af kröfum þeirra, teikningum THG Arkitekta og reglum borgarinnar.
„Það sem átti eftir að gera var að teikna upp húsið í endanlegri mynd í samræmi við umhverfið sem við erum að eiga við,“ segir Birgir.
Hann segir fáa átta sig á því að Hard Rock-verslunin er um þriðjungur af veltu fyrirtækisins. „Hún skiptir gríðarlega miklu máli og svona verslun getur verið að velta meiru en margar stakar verslanir í miðbænum,“ segir Birgir og bætir við að til standi að vera með verslunina á jarðhæð og veitingastaðinn á öðrum hæðum.
Markmiðið er að opna staðinn í sumar og Birgir segir líklegt að sætapláss verði fyrir um tvö hundruð manns.
Spurður um varaplan ef áætlanir í Iðuhúsinu ganga ekki eftir segist Birgir einungis hafa áhuga á því að vera í miðbænum. Hann bendir á að Hard Rock hafi sett sig í samband við sig og segist hafa samþykkt boðið að því gefnu að hentugt húsnæði í miðbænum myndi finnast.