Landsbankinn hefur falið lögmönnum að undirbúa málsókn vegna sölunnar á eignarhlut bankans í Borgun hf. á árinu 2014 til þess að endurheimta þá fjármuni sem bankinn fór á mis við í viðskiptunum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.
Bankasýslan, sem heldur utan um eignarhlut ríkisins í Landsbankanum, hvatti bankann fyrr í vikunni til þess að leita réttar síns telji hann að á sér hafi verið brotið.
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, hefur áður sagst ætla að bíða niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins varðandi Borgunarsöluna áður en bankinn myndi fara þessa leið.
„Þeir eru með málið til skoðunar og kölluðu eftir fullt af upplýsingum frá okkur. Ég geri ráð fyrir að þeir séu að skoða þetta líka hjá Borgun. Staðan í dag er þannig að við erum bara að hinkra til að sjá hvað kemur út úr því,“ sagði Steinþór aðspurður um stöðu málsins í lok síðasta mánaðar.