Skuld eiganda Austurs gerð upp

Miklar deilur hafa staðið yfir um skemmtistaðinn Austur.
Miklar deilur hafa staðið yfir um skemmtistaðinn Austur. mbl.is/Golli

Gjaldþrotaúrskurður Kamrans Keivanlou, eins eiganda Austurs, hefur verið kærður til Hæstaréttar, þar sem skuldin að baki gjaldþrotaskiptabeiðninni var greidd að fullu eftir að úrskurður féll í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Líkt og mbl greindi frá fyrir helgi var Kamran úrskurðaður gjaldþrota í Héraðsdómi Reykjavíkur hinn 11. mars sl. Frá þessu var greint í Lögbirtingarblaðinu á miðvikudaginn.

Eftir að úrskurðurinn féll var skuldin þarna að baki hins vegar gerð upp. Fjárnámsgerðin sem var grundvöllur gjaldþrotaskiptanna var því endurupptekin hjá sýslumanni hinn 21. mars sl. og lokið með fullum efndum.

Var það Austurstræti 5 ehf., sem heldur núna utan um rekstur Austurs, sem fór fram á gjaldþrotaskiptin.

Í kærunni til Hæstaréttar segir að Kamran hafi ekki notið nægjanlegrar leiðsagnar dómara áður en úrskurðurinn var kveðinn upp. Hann sé útlendingur og það hafi valdið réttarspjöllum.

Flókin viðskiptasaga

Kamr­an Kei­van­lou er ann­ar eig­andi fé­lags­ins Al­facom ehf., ásamt Gholam­hossein Mohammad Shirazi, en fé­lagið hef­ur átt fimm­tíu pró­sent hlut í skemmti­staðnum Austur frá ár­inu 2013. Þá ætluðu Ásgeir Kol­beins­son og Styrm­ir Þór Braga­son að selja þeim fyrr­nefndu fé­lagið 101 Aust­ur­stræti, sem hélt utan um rekst­ur staðar­ins, fyr­ir 95 millj­ón­ir króna.

Al­facom greiddi 45 millj­ón­ir króna við und­ir­rit­un kaup­samn­ings og rest­ina átti að greiða síðar. Síðan hafa komið upp ýmis deilu­mál og hafa eft­ir­stöðvarn­ar því ekki verið gerðar upp.

Líkt og fram hef­ur komið vilja Kei­van­lou og Shirazi nú selja hlut sinn í skemmti­staðnum.

Frétt mbl.is.is: Hyggj­ast selja hlut sinn í Aust­ur

Hæstirétt­ur staðfesti á dög­un­um niður­stöðu Héraðsdóms Reykja­vík­ur um að meina þeim Kei­van­lou og Shirazi aðgang að hús­næði skemmti­staðar­ins. Þeir eiga sæti í stjórn fé­lags­ins 101 Aust­ur­stræt­i ásamt þeim Ásgeiri Kol­beins­syni og Kol­beini Pét­urs­syni.

Hæstirétt­ur komst að þeirri niður­stöðu að taka yrði ákv­arðanir um aðgang að hús­næðinu á stjórn­ar­fund­um sem ekki hafi verið gert.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK