Það er ennþá niðurstaða bankaráðs Landsbankans að besti kosturinn varðandi húsnæðisvanda bankans sé að flytja í nýja byggingu á Austurhöfn. Ráðgjafar hafa yfirfarið fyrri útreikninga bankaráðs og var þetta einnig niðurstaða þeirra.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í ávarpi Tryggva Pálssonar, formanns bankaráðs, frá aðalfundi Landsbankans í gær.
Áður en næstu skref verða tekin þarf hins vegar að liggja fyrir að stærsti hluthafinn, þ.e. íslenska ríkið, setji sig ekki upp á móti slíkum áformum, sagði Tryggvi.
„Bankaráðið hefur fjallað um valkosti fyrir nýjar höfuðstöðvar allt frá árinu 2010 og var það niðurstaðan á liðnu ári að hagkvæmast væri fyrir Landsbankann að byggja nýjar höfuðstöðvar á lóð bankans í Austurhöfninni, hér fyrir sunnan Hörpuna,“ segir í ávarpi Tryggva.
„Sú ákvörðun mætti talsverðri andstöðu í þjóðfélaginu eins og vill verða um stórar byggingarframkvæmdir. Bankaráðið vildi taka tillit til þeirra sjónarmiða sem fram komu og lét ráðgjafa yfirfara fyrri útreikninga og skoða nokkrar nýjar staðsetningar.“
„Niðurstaðan var sú sama og fyrr að spara mætti hundruð milljóna á hverju ári með flutningi í nýja byggingu og að Austurhöfnin væri besti kosturinn.“
Í ávarpinu eru talin upp nokkur rök fyrir þessari niðurstöðu; Lóðin sé vel staðsett, skipulag liggi fyrir og hægt sé að hefja framkvæmdir. Þá sé bæði möguleiki á samnýtingu bílastæða og möguleiki á leigu á fleiri bílastæðum í nágrenninu. Að lokum verði ekki þörf á að reka sérstakt miðbæjarútibú.
„Með því að færa starfsemina í hentugra húsnæði skapast tækifæri til þess að stórbæta vinnuaðstöðuna, fækka fermetrum undir starfsemina til mikilla muna og spara um leið verulegar fjárhæðir í rekstri bankans,“ sagði Tryggvi.
Áform Landsbankans um byggingu nýrra höfuðstöðva við Austurhöfn vöktu mikla athygli síðasta sumar.
Meðal þeirra sem létu í sér heyra vegna málsins voru Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra, Elín Hirst, þingkona Sjálfstæðisflokksins, Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og Frosti Sigurjónsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar.
Sagði Frosti að bygging nýrra höfuðstöðva Landsbankans við hafnarbakkann í Reykjavík á dýrri byggingarlóð myndi koma niður á vaxtakjörum viðskiptavina sem borga alltaf svona framkvæmdir að lokum. „Mér líst mjög illa á þetta og hef varað við þessu í langan tíma,“ sagði Frosti.