Tískutímaritið Elle Magazine í Frakklandi lofar íslenska samloku- og djússtaðinn Lemon í nýjasta tölublaðinu. Fyrsta erlenda útibú Lemon var opnað í París 8. mars sl.
Í tímaritinu segir að ekkert jafnist á við að drekka eingöngu djús á morgnana sé ætlunin að halda lærunum grönnum. „Og þá sérstaklega þegar þeir eru jafn gómsætir. Þá hefur maður ekki á tilfinningunni að maður sé að neita sér um eitthvað,“ segir í umfjöllun Elle.
Þá segir að Lemon hafi þegar öðlast aðdáendahóp í stórborginni þrátt fyrir að hafa einungis verið opinn í nokkrar vikur og er tekið fram að um fyrsta íslenska veitingastað Parísar sé að ræða. „Svo biður maður um meira og meira af íslenska jógúrtinu (skyr) sem er ekki selt nema à þessum stað!“
Eva Gunnarsdóttir er sérleyfishafi Lemon í París. Staðurinn er við Rue des Petits Carreaux, sem er rétt hjá göngugötunni þekktu Rue Montorgueil. Húsnæðið er um 150 fermetrar og á tveimur hæðum.
Frétt mbl.is: Opnar Lemon í París