Hrönn ráðin til VÍB

Hrönn Greipsdóttir.
Hrönn Greipsdóttir.

VÍB, eignastýringarþjónusta Íslandsbanka, hefur ráðið Hrönn Greipsdóttur í starf fjárfestingastjóra. Hrönn mun áfram starfa sem framkvæmdastjóri Eldeyjar hjá VÍB en Eldey er fjárfestingafélag sem fjárfestir í afþreyingartengdri ferðaþjónustu.

Í fréttatilkynningu kemur fram að VÍB hefur séð um umsýslu og vörslu Eldeyjar en samhliða ráðningu Hrannar til VÍB mun eignastýring Eldeyjar einnig fara fram hjá VÍB. 

Hrönn er Cand. oecon frá Háskóla Íslands og með MBA með fjármálaáherslu frá CASS í London og hefur jafnframt lokið  prófi í verðbréfaviðskiptum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK