Kvika semur við T. Rowe Price

Viðskiptavinir Kviku hafa nú aðgang að fjölbreyttu úrvali skuldabréfa- og …
Viðskiptavinir Kviku hafa nú aðgang að fjölbreyttu úrvali skuldabréfa- og hlutabréfasjóða á heimsvísu í stýringu hjá T. Rowe Price og Credit Suisse. mbl.is/Golli

Kvika hefur undirritað samstarfssamning við alþjóðlega eignastýringarfyrirtækið T. Rowe Price um sölu og dreifingu á sjóðum þeirra. T. Rowe Price er þekkt á heimsvísu fyrir mikið úrval sjóða í öllum eignaflokkum og mörkuðum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Þar segir að Kvika hafi undanfarin tólf ár verið í góðu samstarfi við Credit Suisse sem er vel þekkt meðal fjárfesta á Íslandi. Með auknum heimildum til fjárfestinga erlendis hefur Kvika unnið að því að auka framboð erlendra fjárfestingarkosta fyrir viðskiptavini sína og er samstarfið við T. Rowe Price liður í því.

Rowe Price var stofnað í Bandaríkjunum árið 1937 og í dag er fyrirtækið með um 760 milljarða dollara í eignastýringu og starfsemi í 16 löndum. Fjárfestingarstefna T. Rowe Price er öguð með áherslu á rannsóknir, virka áhættustýringu og stöðugleika.

Viðskiptavinir Kviku hafa nú aðgang að fjölbreyttu úrvali skulda- og hlutabréfasjóða á heimsvísu í stýringu hjá T. Rowe Price og Credit Suisse.

Eignastýring Kviku er burðarás bankans og þar starfar bankinn á breiðum grunni og veitir sparifjáreigendum alhliða fjármálaþjónustu á innlendum og erlendum mörkuðum. Kvika var nýlega valin fremsta eignastýringarþjónusta á Íslandi þriðja árið í röð af breska fjármálatímaritinu World Finance. Við valið var meðal annars horft til árangurs, vaxtar, vöruþróunar, viðhorfs til áhættu og samfélagslegrar ábyrgðar.

„Kvika hefur átt farsælt samstarf við Credit Suisse um alþjóðlegar fjárfestingar um langt skeið og það er stefna Kviku að geta boðið viðskiptavinum sínum upp á alhliða þjónustu þegar kemur að fjárfestingum erlendis. Það er því afar ánægjulegt að greina frá samstarfinu við T. Rowe Price sem gerir okkur kleift að auka verulega fjölbreytni fjárfestingakosta sem viðskiptavinum Kviku stendur til boða,“ er haft eftir Sigurði Hannessyni, framkvæmdastjóra eignastýringar Kviku í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK