Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir milljónabónusa til handa starfsmönnum eignarhaldsfélagsins Kaupþings lykta af sjálftöku. Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV.
DV sagði frá því fyrr í vikunni að tuttugu manna hópur sem starfaði fyrir félagið gæti átt von á því að fá úthlutað samtals tæplega 1,5 milljörðum króna í bónusgreiðslur, ekki síðar en í lok apríl 2018.
„Ég er ótrúlega hissa á að við skulum verða vitni að svona samningum árið 2016,“ sagði Bjarni í samtali við RÚV í dag. Sagði hann að „allt þetta fyrirbæri sem Kaupþing er, og þessir samningar, hreinlega lykta af sjálftöku.“
Ráðherra sagðist aðspurður ekki hafa heimildir til að „stinga sér inn í“ mál á borð við þetta en menn gætu e.t.v. huggað sig við það að lagaumhverfinu hefði verið breytt þannig að menn kæmust ekki hjá því að greiða launaskatt af greiðslunum.